Raven
Litlu dúllurnar mínar ;)
08.02.2007 20:00:18 / gunna

muuu

Ekkert mehe lengur...HTsyst er hætt að setja inn myndir hér  :haha:

komin í myndateimi með BT, Kristínu og Lindu
www.123.is/2plus2
tékkit baby

BT


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 03:44:12 / gunna

vúhú

myndir komnar inn.....frá

22.des...

21.des...

Gellujólum

10.des í Grindó

Paddy´s

Hverfis í blindbyl

Splash á Pravda

Grindavíkurdjammi

og jólahlaðborðinu...

njótið píííípz ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 17:16:41 / gunna

vúhú myndir handa ykkur

Hey sæta fólk... Brynhildur hér  :haha:

Var að henda inn myndum fyrir krakkann og ekkert lítið af þeim...einhver heil 9 albúm ha geri aðrir betur  ;)  á nú samt eftir að setja fleiri en læt vita þegar ég geri það...þær eru undir dálknum myndir og eru í möppu "níu" tékk it baby

BT


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 05:46:54 / gunna

sálasál

Þvílíkt og annað eins kvöld sem er afstaðið...Hef aldrei skemmt mér svona vel. Fyrirpartýið var heima hjá mér...Hefði aldrei getað trúað því að svona mikið af fólki kæmist inn hjá mér 8| crowded,.,.,.,.,.,. en ótrúlega gaman. Ég og Sunna áttum gjörsamlega dansgólfið í Stapanum...sko aftast. Hef aldrei dansað aftarlega á Sálarballi - enda var Gústa ekki með til þess að berja Gumma Jóns augum ;) Fór á háhest á Agli stóra... haha náði næstum uppí loft á Stapanum. Sunna working í morgunn þannig að hún henti mér út niðri í bæ og fór að sofa. Ég var í roknastuði á dansgólfinu á Trix og dillaði mér eins og þetta væri síðasta sinn sem ég tók sporið. Myndavélin mín var á útopnu dúrídúrí. Endaði svo á ógeðis Casino.....oooooo akkuru er mér alveg sama hvert ég fer þegar ég er full!! Segist aldrei ætla angað en fer svo. ég og Eyrún voða close eikkað- Sakna BT syst voða mikið. Vil hafa hana hjá mér múúú. En græði sápur, converse, og vonandi miklu meira á ferðinni hennar.

Sá svona bjórtest hjá Gústu... hmmm er þetta e-ð sem ég á að sætta mig við??

You Are Corona
You don't drink for the love of beer. You drink to get drunk.
You prefer a very light, very smooth beer. A beer that's hardly a beer at all.
And while you make not like the taste of beer, you like the feeling of being drunk.
You drink early and often. Sometimes with friends. Sometimes alone. All the party needs is you!



» 15 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 18:29:53 / gunna

Say what

Er orðin hálfþreytt á þessu bloggdæmi... ekki alveg minn stíll.

Allt gengur eins og í sögu í íbúðinni (hverig er annars sagan?? Veit það eikkur) Stundum er ég og fleiri farnir að halda að þetta sé samt félagsmiðstöð...Þegar ég er heima er ég aldrei ein - elska samt svona vídjó stelpu kvöld hjá mér og Sunnu ;) Svo er ég farin að hallast að því að ég eigi annan bróður... Hver ætli það sé hmmm!! En elska svona gestagang. Annars væri ég alltaf bara ein heima.

Var að lesa bloggið hjá Brynz - - - - - - - - - - Varð bara mjög döpur að lesa það. Hún var að skrifa pælingar um það að deyja!! Þá rifjaðist upp fyrir mér að ég er búin að láta vita hvaða lög ég myndi vilja að yrðu spiluð í minni jarðaför...en er það fyrir mig eða ættingja sem lögin eru?? Eru þau til þess að ættingjar geti hugsað um mig og rifjað meira upp?? Æ vil ekki hugsa svona.

Árið senn að verða búið. Vá hvað þetta er allt fljótt að líða. Ég verð orðin gömul kona með nýtt lifur áður en ég veit af :evil:

Maginn e-ð að stríða mér þessa dagana!! Skellt mér þá bara til múttu í mat núna...en held samt að ég komist ekkert heim í kvöld á sléttu sumardekkjunum mínum. Hver veit


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 21:30:53 / gunna

allt breytt

jisús var næstum búin að gefast upp!! Endalaust lengi að finna hvernig etta nýja lúkk á central virkar!
Ég og Sunna eigum lítið leyndarmál!!!!!!!!!!!!
Helga ég er búin að dansa nógu oft við þig á Paddy´s svo farðu að þegja stelpa ;) Er netlaus tölvulaus og kallalaus í íbúðinni svo ég hef ekkert annað verið að gera en að vinna, sjoppan og Fríhöfnin. Reikna samt með því að missa vinnuna eins og flestir 15.des...hvað ætlið þið hin að fara að gera?? Ég er barasta næstum tóm!
Djamm síðasta fös, fokk hvað var gaman. Entist til 6 og það á föstudegi! Kannski er eitthvað líf að kvikna. Fullt af fólki að djamma,,,sjibbý.
Bauð Sunnu í mat í gær...vá hvað ég get verið klár heh, segjum bara að ég hafi fengið smá hjálp naha. En þetta var geggjað kvöld. Góður matur, tv og rúntur til 3 u nóttina - hvað var það??
Planið er sett á borg óttans í orðsins merkingu. Alltaf eikkurar helvítis nauðganir og slagsmál - verð með Sunnu mína edrú með mér. Hefði örugglega ekki þorað annars. En svo er Helpa Felga að pæla að koma með okkur, ætli að renni ekki bara af mér við að aðstoða hana að standa í lappirnar hmmmm. Gef henni þá bara glóðarauga ef hún heldur ekki kjafti naha. Svo er firmamótið líka á fös í Reykjaneshöllinni. Læt mér nægja að vera klappstýra á bekknum með bjór ;) hata gervigras, þannig ég verð utan vallar þetta skiptið.
Fólk, kvetjið svo Brynhildi systir til að skrifa ekki undir samning við Grindavík!!!!!!! Nenni ekki að hafa hana alltaf edrú!
Stelpurnar í skólanum alltaf að gera grín af mér, þær í vinnunni líka,  hvar ertu Ólöf Helga?? :$


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 22:25:28 / gunna

man

Ble!

Búið að vera brjál að gera. Flytja lifa vinna vinna vinna vinna laga til vinna djamma partý vinna! Þetta er held ég bara það eina sko. Nokkrir rúntar kannski - en ekki margir.

Fékk áframhaldandi í Fjíjó ;) Rosa sátt með það. Svo er ég að leysa af í Njarðvíkursjoppu...kíktu í heimsókn naha. Rosa klár ha.

Skólinn að byrja svo á þriðjudaginn - ákvað að skella mér í 8-1 skóla. Þannig þetta verður nóg í heilan mánuð. Verð í skólanum á morgnana og svo fer ég í sjoppuna 2-12 þegar ég er í fríi í Fríjó...:$

Talandi um Fríjó. Staffadjamm hjá okkur miðvikudaginn síðasta. Hittumst á Duus og þaðan í rútu til Rvk. Höfrungaskoðun. Varð sjóveik!!!! Díses, hef oft farið á sjó en aldrei í svona sléttann sjó. Ældi og ældi á gluggann á hliðinni á bátnum og þá var það glugginn þar sem fólkið var inniað borða 8) Það fannst mér best. Eftir það komum við aftur til Kef og fórum á Yello í Rockstar - hvar var fríi bjórinn?? Þaðan heim til mín þar sem Bergur drapst strax og svaf í heila 12 tíma...vaknaði ekki fyrr en um morguninn á bringunni á Hemma - hvað er málið með þá 2?? 8|

Sálarballið geggjað...sumir að greddupaddast!! Hvað er málið. Náði mér samt fallega útúr því ;) ánægð með það...

og fkn látið mig vita slóðirnar fyrir eyjamyndirnar þið sem voruð eikkað með mér í Eyjum...er alveg tóm hverjir voru með vél :klikk:


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 15:56:03 / gunna

leyndur aðdáandi bloggar... ;)

bara að blogga smá handa Hrafnhildi þar sem að hún kemst ekki í tölvu þessa dagana og ég komin með ógeð af blogginu fyrir neðan  8|

en allt gengur eins og í sögu með íbúðina og allt í gúddí...rosa gott að sofa þarna, sturtan alltaf góð og PIZZA HUT stóllinn shjiiii það elska hann allir nema Raven hvað er það ?

komið gott held ég en endilega farið að kíkja í heimsókn í bruður og djús  :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 23:03:36 / gunna

igjlÆv

Hvað er fólk virkilega að hugsa áður en það fer í flug?? Búin að velta þessu fyrir mér síðan ég byrjaði í Fríhöfninni. Margt af fólkinu sem fer í gegnum, bæði komu og brottför er svo ógeðslega sveitt. Jisús svitafílan er stundum óbærileg. Ótrúlegt mar. Sat á kassa um daginn og var að éta nammi, þá kom feitasti maður sem ég hef á ævinni séð, hann komst ekki inní búð. Þurfti að bíða fyrir utan og segjafólkinu sem var með honum hvað það átti að kaupa því hann var gjörsamlega búinn á því manngreyið. Þarna hét ég mér því að vera ekki feitari enn ég er núna og hélt svo áfram að borða nammið mitt 8| Voða jaxl. Hámaði og hámaði. ohhh er nammisjúk! Þoli það ekki. Hélt ég myndi nú minnka þetta þegar ég myndi hætta uppí lóni...en nei, það er enn meira nammi á mýja staðnum.

Elska þegar e-r sem ég þekki er að koma heim. Hata samt þegar það fer út, sérstaklega ef það er til sólaranda. Var sem betur fer ekki að vinna þegar Sólveig, Guðný & Hófí fóru :S

Var að koma heim af leiknum.Reynir-Njarðvík. Fór 1-1, Njarðvík átti samt að busta þetta. Voru bara óheppnir :evil: Nokkrir nettir í þessum liðum. Sumir samt nettari en aðrir ;)

Búin að vera að flytja í 2 daga. Ætla að sofa á morg. Næ svo í allt draslið útí Grindó á mánudaginn með góðri hjálp frá Bigga Júlla & Bjarna. Þannig að það ætti allt að vera smollið fyrir næstu helgi. Planið var að hafa innflutningspartý þá eeeeeeeen það er frændsistkyna útilega þá sem ég ætla á. Reikna með að hafa bara partý síðustu helgina í júlí. ágætis uphitun fyrir Eyjar ;) Hvað segiði um það??

Er að pæla að skella mér á Þjóðhátíð!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Óstaðfest samt!

Hei hvað er lengsta orðið á Islandi?? Veit e-r?? Joey gefur ykkur 2kippur ef þið giskið rétt haha 8)

       Farin að flytja meir. ikea á morg með Sollu mom ;)


» 21 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 19:16:09 / gunna

Virkar þetta á þig??

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:01:12 / gunna

dfjk

Rosalegt ættarmót að baki. Magnað brúðkaup. Heiftarlegt fótboltapartý.

Eina spennan í augnablikinu er íbúðin...6 dagar . Er samt að vinna fyrirÓlöfu næstu helgi! Þessi elska reddaði mér nebbla þessa helgi ;)

Týndi myndavélinni minni "aftur". Fekk hana samt aftur í morgunn. Skemmdi hana síustu helgi og það er ekki hægt að stilla hana. Reyndi samt - myndirnar voru svo hreyfðar en þá setti ég hana á video ! Vissi ekki 1x að ég væri með vídjó í henni Nú get ég ekki tekið myndir! ohhhh ég sem á svo fallega ættingja  heh

Þú veist að það er 2006 ef.....





1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.


2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því
þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara
á takkann á sjónvarpinu.


6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.


9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú
féllst
fyrir þessu.



Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En, ef þú bíður of lengi,
mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En
vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun. )
jiiiiiiii það gerðist svoooooooo miið á ættarm´tinu. Fór alltaf síðust heim - kemur á óvart! Vaknaði rosa snemma líka þannig að ég á örugglega mestu sögrnar að segja naha. Veriði bara góð!!
Hei hefuru velt þér upp úr dögg?? hver?? Gréta Dögg??
Lenti í slag á laugardaginn 8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 15:46:17 / gunna

ásohjera

Hver sem segir að það sé sumar er _________ asni! Litla ógeðis veðrið!

 

Íbúðarafhending eftir 2 vikur ;)

 

Skellti mér á kvennaleik í Grafarvogi á þriðjudaginn. Fjölnir – GRV. Ekki alveg sátt með úrslitin í þeim leik. Eeeeeen þá er ekki annað hægt en að gera betur næst ;) Fór svo líka á Kef – FH. Lokatölrnar nánast þær sömu nema þetta skiptið réttu meginn.

 

Held ég sé orðin liðamella! Grindavík í 1.deild kvk og úrvals karla. Kef í úrvals kvk. Njarðvík í karlakörfunni. Hvaða lið ætli sé í kvennakörfunni. Kræst!

 

Loksins komið að helgarfríi. God. Ætla samt ekki að liggja heima og hlaða batteríin (akkuru batteríin). Ó nei. Rosa dagskrá strax komin. Fótboltadjamm með Kef stelpunum í kvöld. Stefnan tekin í rvk. Jiiii svoooo langt síðan ég djammaði þar, á ekki eftir að rata neitt. Planið að vera ekki lengi. Spurning hvort það eigi eftir að skipt nokkru máli þegar ég er komin í glas :/

 

Brúðkaup á  morg. Jiiii hvað ég hlakka til. Var að dekka upp áðan og það er ótrúlegt hvað flottar servíettur, flottir dúkar og flott uppdekkning geta gert ljótar gardínur fínar. Athöfnin í Garðinum og veisla í njarðvík. Er gjörsamlega að deyja úr tilhlökkun. Allt svo fallegt, jákvætt og gott. Mmmm.

 

Allt mitt líf hef ég haft mynd í huganum hvernig mitt brúðkaup eigi að fara fram. Hvernig kjóllinn á að vera, hvaða tónlist, hver á að leiða mig inn, litaþemað og brúðkaupsferðin. Það breyttist nú heldur betur planið um brúðakaupsferðina þegar ég fór áPoseidon á mánudaginn. Djö! Ekki sátt. Það eina sem vantaði í planið mitt var kallinn heh. Núna þarf e´g að pæla hvert mig myndi langa að fara líka. Össss

 

Planið eftir veisluna á morg er rosa mikið. Er ekki viss hvað ég geri. Í boði er að fara í rvk á árlega 17.júní djammið okkar Gellana, Skímóball með Brynz eða Safnaðarfundur eftir messuball með rosa mörgum úr ættinni minni. Mmmm elska hvað ég á skemmtilega ættingja ;) En hvað ætlar þú að gera??

 

Farin að brúðkaups stússast. **********?**********


» 9 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 15:18:37 / gunna

saklaus??

Bögg þýðir högg ;)

XXX

* Sjómó framundan og ég að vinna alla helgina! Byrja 5 - sótt hálf! Hvaða ókristilega dæmi er í gangi. Getur fólk ekki bara flogið á öðrum tímum > svo ég geti verið full á bryggjunni ;) jiiii var einmitt að rifja þetta upp með Brynhildi. Rosa. Nýkomin heim frá Englandi...vá það er komið ár síðan. Fokk hva tíminn er fljótur að líða. issss ég verð þrítug áður en ég veit af!

Hver ætlar að dettíða á sun?? mi langar svoooo. Þá get ég allavega sagt að ég hafi djammað Sjómó ´06 naha. Spurning að fá skiptivinnu á sun?? ohhhh svo margt í gangi. Á samt einn skiptidag inni. Nota hann?? Er ball á lau?? úfff erfitt að vera ekkert í kringum Grindjánana þegar þetta er að bresta á! Á þá bara forskot a Ljósanótt ;)

Gellur - býð ykkur hér með í partý hjá mér á Ljósanótt - game?? sakna ykkar!


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 22:17:29 / gunna

jkdfh

mmmm þetta var bara snilld. Ákvað að henda nokkrum myndum hér inn fyrir lónsfólkið. Svo þau fái smjörþefinn af þessu...ekki hægt að skoða þar picturetrail




























Dagurinn í dag búinn að einkennast af vatnsslag, Grindó ferð, hlátrum dauðans og þynnku aldarinnar. ---------------------------farin á djammið. Vil sjá flesta í kvöld ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 11:51:20 / gunna

...:::...

blogga um bústaðarferðina þegar myndirnar eru komnar inná netið. Eitthvað bilað hér. Kem þeim alveg inn í tölvuna en ekki á picturetrail 8| Sorry Bergmann. Ég kann þetta víst___tölvan er bara eikkað biluð!!

Veik smeik hérna meginn!! ohhhh hvað ég er pirruð á þessu. Rosa sól úti og ég heng inni. Ekki sátt. Fór heim úr vinnu í gær.

2 útskriftarveislur í dag sem mér er boðið í. Marta og Kata. Kata er með sína í dag klukkan 4...ætla að gera heiðarlega tilraun til þess að fara í hana ef ég verð aðeins betri. Þá er nottla alltaf stutt heim. Marta með sína í Grindó í kvöld og svo Móti Sól ball eftir það. Verð því miður að beila á því :evil: treysti mér ekki til að vera í bíl alla leið til indjánavíkur. S0rrý Marta. En óska þér innilega til hamingju. Mérfinnst þú rosa pæja að vera komin með eina hvíta og inní Bifröst ;)

Grindavík tapaði í gær og var víst voða hiti í mönnum!! Hvað er að ykkur fólk?? Þetta er fkn leikur! Ekki sátt með framkomu Grindvíkinga. Brjóta fánann sinn___hvað ætlaru að vera með í næsta leik fífl?? Brjóta stól í stúkunni___hver á að borga það fáviti?? Akkuru þarf fólk alltaf að vera svona ruglað? Er ekki bara hægt að ganga hljóðlega út úr stúkunni og hugsa hvað hefði mátt fara betur? Er ánægð með að titla mig sem Njarðvíking, þó ég haldi með Grindó í fótbolta. Ætlar þetta fólk svo að mæta á næsta leik og vera "stuðningsmaður" þá?? Æ, nenni ekki að velta mér upp úr þessu lengur. Vonandi vinna þeir bara næst 8) Allt sumarið eftir...

Byrja í Fríhöfninni á mánudaginn klukkan hálf sex. jiiii mér kvíður bara pínu fyrir. Sótt um 5 leytið. Þetta verður eitthvað. Hætti svo í lóninu 30.mai. Þau eiga eftir að sakna mín!! mjúka hárið, hái hláturinn, sögurnar og bara allt!! haha Djók. Vera örugglega fegin að ég fari...þá geta þau haldið í vonina um að vera ennþá með heyrnina í ellinni ;)



ohhh langar að eiga þau

mmmm

Farin að horfa á sólina útum gluggan. Veifaðu ef þú ferð framhjá ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13